IKEA STENSTORP Manual - Halaman 9

Jelajahi secara online atau unduh pdf Manual untuk Perabotan Dalam Ruangan IKEA STENSTORP. IKEA STENSTORP 32 halaman.
Juga untuk IKEA STENSTORP: Manual (32 halaman)

IKEA STENSTORP Manual
ÍSLENSKA
Borðplatan er úr gegnheilli eik með 7-9%
rakainnihald. Það er rétt rakainnihald fyrir
borðplötur sem notaðar eru þar sem hita-
og rakastig er venjulegt. Borðplatan er
náttúruleg vara og „andar" og getur þess
vegna verpst dálítið vegna breytinga á
rakastigi í umhverfinu. Hægt er að vinna á
móti þessu með því að fylgja leiðbeiningum
fyrir uppsetningu og umhirðu hér að neðan.
1 Opnið ekki plastumbúðirnar sem
eru utan um borðplötuna fyrr en
að samsetningu kemur. Geymið
borðplötuna við venjulegt hitastig (um
20°C) og venjulegt rakastig. Stillið
borðplötunni ekki upp við heitan ofn og
leggið hana ekki á kalt gólf.
2 Borðplatan er meðhöndluð í
verksmiðjunni með viðarolíu. Pússið
borðplötuna með fínum sandpappír
eftir uppsetningu. Pússið í þá átt sem
viðurinn liggur. Berið þunnt lag af
BEHANDLA viðarolíu á viðinn. Bíðið í um
15-20 eftir að olían smjúgi alveg inni í
viðinn. Notið mjúkan klút til að þurrka
umframolíu af viðnum. Meðhöndlið
borðplötuna annan hvern dag fyrstu
vikuna eftir að notkun hefst og síðan
þriðja hvern dag þangað til yfirborðið
er mettað (eftir um tvo mánuði). Til
að varðveita endingargott yfirborð
viðarins um mörg ókomin ár mælum
við með því að hann sé meðhöndlaður
með BEHANDLA viðarolíunni 3-5 sinnum
á ári. Svæði þar sem viðurinn gæti
þornað, eins og í kring um vaskinn eða
helluborðið ætti að meðhöndla oftar.
3 Rispur og litla bletti má pússa af með
sandpappír K180 á pappírskubb. Pússið
alltaf í þá átt sem viðurinn liggur. Notið
milda sápu og vatn við dagleg þrif.
Notið aldrei stálull eða aukaefni til að
þrífa yfirborðið.
Eldhúsáhöld og fleira úr steypujárni geta
skilið eftir sig svarta bletti á borðplötunni.
Það er vegna þess að tannínsýra í
eikinni hvarfast við járnið. Setjið þess
vegna aldrei blauta steypujárnspotta
beint á borðplötuna. Notið pottastand.
Yfirborðsskemmdir er hægt að laga með
því að pússa með fínum sandpappír í þá
átt sem viðurinn liggur. Berið síðan olíu á
yfirborðið.
MIKILVÆGT! Þvoið notaða pensla með vatni
og látið klúta liggja í bleyti, eða kveikið í
þeim undir eftirliti til að koma í vef fyrir
sjálfsprottinn bruna.
9