AEG TAB6L88EF Panduan Pengguna - Halaman 27
Jelajahi secara online atau unduh pdf Panduan Pengguna untuk Pembeku AEG TAB6L88EF. AEG TAB6L88EF 36 halaman.
4.5 Frostmatic aðgerð
Frostmatic aðgerðin er notuð til að forfrysta
og hraðfrysta í röð í frystihólfinu. Þessi
aðgerð hraðar frystingu ferskra matvæla og
ver um leið matvæli sem þegar eru geymd
gegn óæskilegri hitnun.
Til að frysta fersk matvæli skal virkja
Frostmatic aðgerðina minnst sólarhring
áður en maturinn sem á að forfrysta er
settur í frystihólfið.
1. Til að virkja þessa aðgerð, skaltu ýta á
Mode hnappinn þar til samsvarandi tákn
birtist.
Frostmatic vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á OK hnappinn til að staðfesta.
Frostmatic vísirinn er birtist.
Þessi aðgerð stöðvast sjálfkrafa eftir 52
klukkustundir.
Þú getur einnig afvirkjað Frostmatic
aðgerðina með því að endurtaka ferlið þar til
það slokknar á Frostmatic vísinum eða með
því að velja aðra hitastillingu fyrir kælinn.
4.6 ChildLock aðgerð
Virkjaðu ChildLock aðgerðina til að læsa
hnöppunum gegn óviljandi notkun.
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi tákn
birtist.
ChildLock vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
ChildLock vísirinn er birtist.
Til að afvirkja ChildLock aðgerðina skal
endurtaka verklagið þar til ChildLock vísirinn
slokknar.
4.7 DrinksChill aðgerð
DrinksChill aðgerðina á að nota til að stilla
hljóðaðvörun á ákveðnum tíma, sem er til
dæmis gagnlegt þegar uppskrift útheimtir að
matvæli séu kæld í ákveðið langan tíma.
Einnig er hún gagnleg þegar þörf er á
áminningu til að gleyma ekki flöskum eða
dósum sem settar hafa verið í frystinn til að
hraðkæla þær.
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi tákn
birtist.
DrinksChill vísirinn leiftrar.
Tímastillirinn sýnir innstillt gildi (30 mínútur) í
nokkrar sekúndur.
2. Ýttu á tímstillinguna til að breyta
innstilltum tíma frá 1 upp í 90 mínútur.
3. Ýttu á OK til að staðfesta.
DrinksChill vísirinn er birtist.
Tímamælirinn byrjar að leiftra (min).
Við lok niðurtalningar blikkar „0 min" og
viðvörunarhljóðmerki heyrist. Ýttu á OK-
hnappinn til að slökkva á hljóðinu og slökkva
á aðgerðinni.
Til að slökkva á aðgerðinni skaltu endurtaka
ferlið þar til það slokknar á DrinksChill-
vísinum.
Mögulegt er að breyta tímanum hvenær
sem er meðan á niðurtalningu stendur og
í lokin með því að ýta á hnapp fyrir lægra
hitastig og hnapp fyrir hærra hitastig.
4.8 Aðvörun um háan hita
Þegar hitastigið hækkar í frystihólfinu (til
dæmis vegna þess að rafmagn hafði áður
farið af), þá fer aðvörun í gang, hitastigsvísar
frystisins leiftra og hljóðið fer á.
Til að slökkva á aðvöruninni:
1. Ýttu á einhvern hnapp.
Það slokknar á hljóðinu.
2. Hitastigsvísir frystisins sýnir hæsta
hitastigið sem náðst hefur, í nokkrar
sekúndur og síðan sýnir skjáinn stillt
hitastig aftur.
Aðvörunarvísirinn heldur áfram að leiftra
þar til eðlilegu ástandi er náð.
Ef þú ýtir ekki á neinn hnapp, slekkur
hljóðið á sér sjálfkrafa eftir eina
klukkustund til að forðast truflun.
4.9 Aðvörun fyrir opna hurð
Ef frystihurðin er skilin eftir opin í um það bil
90 sekúndur heyrist hljóð og aðvörunarvísir
leiftrar.
Aðvörunin stöðvast eftir að hurðinni er lokað.
Meðan á aðvöruninni stendur er hægt að
þagga í hljóðinu með því að ýta á hnapp.
ÍSLENSKA
27