IKEA 104.947.70 Manual - Página 33
Procurar online ou descarregar pdf Manual para Frigorífico IKEA 104.947.70. IKEA 104.947.70 44 páginas.
ÍSLENSKA
• Til að koma í veg fyrir matarsóun skal
alltaf setja ný matvæli fyrir aftan þau
eldri.
Ábendingar um góða kælingu
• Ferskvöruhólfið er það sem er merkt (á
merkiplötunni) með
• Kjöt (af öllum gerðum): Pakka inn í
hentugar umbúðir og setja á glerhilluna
fyrir ofan grænmetisskúffuna. Kjöt skal
ekki geyma lengur en 1-2 daga.
• Ávextir og grænmeti: Hreinsa vandlega
(fjarlægja alla mold) og geyma í sérstakri
skúffu (grænmetisskúffunni).
• Ekki er æskilegt að geyma framandi ávexti
eins og banana, mangó, papæja, o.s.frv. í
kæliskápnum.
Umhirða og hreinsun
Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn,
skal þvo innri og alla innri fylgihluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu til að losna við
dæmigerða lykt af nýrri vöru og þurrka svo
vandlega.
VARÚÐ! Ekki nota þvottaefni,
slípiduft, klór eða olíublönduð
hreinsiefni, þar sem það skemmir
áferðina.
VARÚÐ! Aukahlutir og hlutar
heimilistækisins eru ekki ætlaðir
fyrir uppþvottavélar.
Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega og
strjúktu af þeim svo þær séu hreinar og
lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
.
• Grænmeti, svo sem tómata, kartöflur,
lauk og hvítlauk, skal ekki geyma í
kæliskápnum.
• Smjör og ostur: Setja í loftþéttar umbúðir
eða pakka inn í álpappír eða pólýþen-
poka til að útiloka eins mikið loft og hægt
er.
• Flöskur: Loka með loki og setja í
flöskuhilluna í hurðinni, eða (ef til staðar) í
flöskurekkann.
• Skoðaðu alltaf fyrningardagsetningu
varanna til að vita hversu lengi á að
geyma þær.
Ísskápurinn affrystur
Frostið er losað sjálfkrafa úr eimi
kælihólfsins við eðlilega notkun. Vatnið eftir
affrystinguna lekur út í gegnum trekt í
sérstakt ílát aftan á heimilistækinu fyrir ofan
þjöppuna, þar sem það gufar upp.
Það er mikilvægt að hreinsa reglulega
niðurfallsgatið fyrir affallsvatnið sem
staðsett er undir salatskúffunum til að koma
í veg fyrir að vatnið flæði upp úr og leki á
matinn inni í kælinum.
Það skal nota rörahreinsinn sem fylgir með
heimilistækinu við þrifin.
33